Ofsagt að upptaka evru gæti útilokað ESB-aðild 30. október 2007 12:00
Það er ofsagt að einhliða upptaka evru gæti útilokað aðild að Evrópusambandinu, segir Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar. Það geti vissulega flækt málin en útilokar ekkert. Einn helsti sérfræðingur landsins í Evrópusambandsmálum, Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að einhliða upptaka evru gæti útilokað Evrópusambandsaðild. Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, samtaka sem eru andvíg aðild, segir það ofsagt hjá Eiríki. Það gæti hins vegar flækt málin og slíkar vangaveltur hafi komið upp í tengslum við Svartfjallaland sem lengst af var með þýska markið, tók síðan einhliða upp evru og sækist nú eftir inngöngu. Flækjan felist í því að til að ríki geti tekið upp evru í tengslum við ESB þarf það að uppfylla nokkuð ströng skilyrði um meðal annars, skuldastöðu ríkisins, fjárlagahalla og verðbólgu. Ríki sem tekur evruna upp einhliða - er auðvitað ekki háð þessum skilyrðum. Ragnar segir hins vegar að menn telji ekki að evruupptaka Svartfellinga muni koma í veg fyrir aðild. Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, sem berjast fyrir inngöngu í ESB, mótmælir líka orðum Eiríks. Einhliða upptaka gæti hins vegar skapað erfitt fordæmi, segir Andrés. Við uppfyllum flest skilyrði fyrir aðild að sambandinu, segir Andrés, hins vegar uppfyllum við ekki skilyrði fyrir evruna eins og er.
Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Erlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Innlent Fleiri fréttir Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Sjá meira