Vill endurbætur á vegi vegna mikillar umferðar Björn Gíslason skrifar 29. október 2007 10:22 MYND/Pjetur
Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, hefur óskað eftir fundi með samgönguráðherra til þess að ræða mikla aukningu á umferð á veginum undir Hafnarfjalli á síðustu árum og þarfar endurbætur á honum.Einar vekur athygli á því á vef Hvalfjarðarsveitar að samkvæmt tölum Vegagerðarinnar hafi umferð á kaflanum Höfn-Borgarfjarðarbraut, sem er undir Hafnarfjalli, aukist um 51 prósent á árunum 2000-2006. Segir hann þetta einhverja almestu aukningu á umferð á öllu Vesturlandi á þessu tímabili. Þrátt fyrir þessa umferðaraukningu hafi engar endurbætur átt sér stað á veginum allan þennan tíma og tími sé kominn á endurbætur.Í samtali við Vísi segir Einar að vegurinn sé slæmur. „Hann er hæðóttur og krókóttur og það eru nokkur hættuleg vegamót þarna, til að mynda í Leirársveitina og Melasveitina," segir Einar. Hann telur að umferðaraukninguna megi meðal annars rekja til mikils uppgangs hjá háskólunnum á Bifröst og Hvanneyri, hvort tveggja séu nú blómstrandi háskólabæir.Einar segist hafa pantað tíma hjá samgönguráðherra til þess að ræða málið og sömuleiðis stöðu hringvegarins sem liggi í gegnum Hvalfjarðarsveit endilanga frá Hvalfjarðargöngum langleiðina að Borgarfjarðarbrú. „Við viljum hvaða hugmyndir ráðherra hafi um framtíðarveglínu hringvegarins, það er hvorum megin Akrafjalls hann muni liggja," segir Einar.Vegurinn liggur nú norðan Akrafjalls en vegstæðið er fremur þröngt til að breikka veginn. Verið er að skoða hugmyndir um að leggja hann sunnan megin fjallsins og með tengingu yfir Grunnafjörð. Einar segir að nokkur andstaða hafi verið við þá hugmynd því Grunnafjörður sé friðlýstur. Þá segir Einar að ráðherra verði inntur eftir því hvaða hugmyndir ráðherra hafi um veginn, það er hvort hann verði 2+1 eða 2+2 í framtíðinni.Auk þess hyggst Einar kynna fyrir ráðherra skýrslu sem sveitarfélagið lét verkfræðistofu vinna fyrir sig um hættuleg gatnamót í sveitarfélaginu. Bendir hann meðal annars á vegamót hringvegarins og Akrafjallsvegar annars vegar og Hvalfjarðarvegar hins vegar sem dæmi. Skýrslan hefur þegar verið kynnt vegamálastjóra og segir Einar að vegamálastjóri hafi hrósað sveitarstjórnarmönnum í Hvalfjarðarsveit fyrir að hafa látið vinna skýrsluna að eigin frumkvæði.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira