Innlent

Eldur í sorpgeymslu í tólf hæða húsi

Slökkvilið var kallað út var vegna elds sem kviknaði í sorpgeymslu í tólf hæða fjölbýlishúsi í Hátúni í Reykjavík í nótt. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en nokkur viðbúnaður var á vettvangi enda fjölmargir í húsinu. Ekki er vitað um eldsupptök.

Slökkvilið var víðar kallað út vegna elds í rusli í Reykjavík í nótt. Meðal annars logaði eldur í sorpi á víðavangi í Grafarvogi en slökkt var í því. Óverulegt eignatjón varð vegna þessara sorpbruna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×