Innlent

Alcoa Fjarðarál harmar að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt

Sverrir Albertsson framkvæmdastjóri AFLs gagnrýndi uppsagnirnar harðlega.
Sverrir Albertsson framkvæmdastjóri AFLs gagnrýndi uppsagnirnar harðlega.

Í tilkynningu frá Alcoa Fjarðarál sem send var fjölmiðlum síðdegis er það harmað að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt við uppsögn tveggja kvenna í síðustu viku.

Jafnframt segir í tilkynningu að tryggt verði að þeim ferði fylgt í framtíðinni, komi til svipaðra aðstæðna.

Tilkynningin kemur í kjölfar gagnrýni Sverris Albertssonar, framkvæmdastjóra stéttafélagsins AFL en hann sagði að konunar sem sagt var upp hefðu verið sóttar á vakt og afhent uppsagnarbréf. Önnur hefði fengið þá skýringu að hún gæti ekki lært á tæki og hinni sagt að hún félli ekki í hópinn. Þeim hafi verið gert að tæma fataskápa í fylgd öryggisvarða og jafnframt meinað að taka rútu með samstarfsmönnum sínum til Reyðarfjarðar.

Yfirlýsingu Alcoa Fjarðarál vegna málsins má sjá hér fyrir neðan:



Eðli málsins samkvæmt getur Alcoa Fjarðaál ekki rætt efnislega einstakar uppsagnir. Fyrirtækið leggur mikið upp úr góðum starfsanda og öruggu vinnuumhverfi og hefur innleitt margar nýjungar á því sviði hér á landi. Á stórum vinnustað á borð við Fjarðaál, þar sem starfa hátt í fjögur hundruð manns, er hins vegar ljóst að því miður verður einstaka sinnum ekki komist hjá því að segja upp starfsmönnum, af ýmsum ástæðum. Það er stór ákvörðun að segja fólki upp störfum og ljóst að ekki er gripið til slíkra aðgerða nema að vel ígrunduðu máli. Hjá fyrirtækinu liggja fyrir skýrar verklagsreglur um hvernig uppsögnum skuli háttað, meðal annars til að tryggja öryggi starfsmanna.

Fyrirtækið harmar að við uppsagnir tveggja starfsmanna í síðustu viku var þeim verklagsreglum ekki fylgt út í hörgul. Brugðist hefur verið við til að tryggja að þeim verði fylgt í framtíðinni, komi til svipaðra aðstæðna, enda lítum við svo á að góðir starfsmenn og vinnuandi séu mikilvægasta auðlind fyrirtækisins.

Yfirlýsingar Sverris Albertssonar, framkvæmdastjóra Afls starfsgreinafélags, þess efnis að uppsagnirnar séu ætlaðar til að skapa óöryggi á vinnustaðnum eru algjörlega úr lausu lofti gripnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×