Sýknaður af ölvunarakstri vegna vinnubragða lögreglu 26. október 2007 11:57 MYND/Páll Bergmann
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í dag karlmann af því að hafa verið ölvaður undir stýri vegna annmarka á vinnubrögðum lögreglu. Atvikið átti sér stað í mars síðastliðnum en þá barst lögreglunni á Selfossi tilkynning í gegnum síma um að bifreið hefði verið ekið út af veginum á Hellisheiði og sagði vitnið að ökumaðurinn virtist ölvaður. Þegar lögregla kom á vettvang sat hins vegar maður í farþegasætinu frammi í bílnum. Þegar hann var spurður að því hvort hann hefði verið ökumaður bifreiðarinnar neitaði maðurinn því og sagði kunningja sinn hafa verið við stýrið en hann hefði húkkað sér far í bæinn. Kvaðst hann ekki vilja koma vini sínum í vandræði og neitaði að segja til hans. Þegar maðurinn var spurður um lyklana að bílnum sagði hann kunningjann hafa farið með þá í bæinn. Það reyndist hins vegar ekki rétt því þeir fundust á gólfinu framan við hægra framsæti. Þá voru nokkrar bjórdósir, bæði fullar og tómar á gólfi bílsins. Fyrir dómi neitaði maðurinn að hafa ekið umrætt sinn en sagði bróður sinn hafa ekið. Vegna hálku og ófærðar hefði hann síðan misst stjórn á bifreiðinni og hún farið út af á Hellisheiðinni. Hefði bróðirinn svo húkkað sér far til Reykjavíkur til að ná í aðra bifreið til að sækja hann. Bróðir mannsins sem ákærður var kom einnig fyrir dóminn og sagðist hafa verið við stýrið umrætt sinn. Dómurinn komst að því að margt væri ótrúverðugt í framburði hans og sama mætti segja um hinn ákærða. Lögregla hafði samband við þann sem tilkynnti um atvikið og hafði sá lýst útliti ökumannsins sem samsvaraði útliti hins ákærða. Þetta staðfesti lögreglumaður fyrir dómi. Þetta vitni var hins vegar ekki leitt fyrir dóminn. Þá var ekki tekin formleg skýrsla af því. Að þessu virtu komst héraðsdómur að því ekki væri hægt að byggja á símtali lögreglunnar við umrætt vitni til þess að sakfella manninn fyrir ölvunarakstur. Þótt framburður ákærða og bróður hans þætti ótrúverðugur væri slíkur vafi í málinu að ekki væri hjá því komist að sýkna manninn af ákæru um ölvunarakstur.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Fleiri fréttir Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Sjá meira