Innlent

Flutt með þyrlu fyrir dómara

Kona sem var handtekinn í Vestmannaeyjum, grunuð um að hafa kveikt í íbúð sinni þar á miðvikudaginn, var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Selfoss í gær, til að færa hana fyrir dómara Héraðsdóms Suðurlands.

Ekkert áætlunarflug var, og því varð að grípa til þessa ráðs þar sem lögregla hefur gert kröfu um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir henni, og sólarhrings fresturinn frá handtöku var að renna út.

Dómarinn tók sér frest til klukkan fjögur í dag og er konan vistuð í fangageymslum á Selfossi á meðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×