Innlent

Háskóla Íslands skipt upp í fimm fræðasvið

Háskóla Íslands verður skipt upp í fimm fræðasvið og vald fært frá rektor og yfirstjórn skólans til forseta fræðasviðanna, samkvæmt skipulagstillögum sem háskólaráð hefur samþykkt.

Fræðasvið Háskóla Íslands verða Heilbrigðisvísindasvið; Hugvísindasvið; Félagsvísinda-, laga og viðskiptasvið; Verkfræði- og raunvísindasvið; og Menntavísindasvið, fallist Alþingi á þessa skipan en lagabreytingu þarf til. Stefnt er að því að skipulagsbreytingarnar taki gildi þann 1. júlí á næsta ári. Í tilkynningu Háskólans segir að þær taki meðal annars mið af sameiningu Háskólans og Kennaraháskóla Íslands. Með þeim flyst vald frá yfirstjórn Háskólans og til fræðasviðanna. Þannig fær hver deild æðsta vald um fagleg málefni. Vald yfir starfsmannamálum og fjármálum verður einnig flutt frá rektor og yfirstjórn skólans til forseta fræðasviða. Markmiðið er að gera fageiningar sterkari og fljótari til framkvæmda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×