Innlent

Kirkjulögum breytt á kjörtímabilinu

Birgir Ármannsson, alþingismaður.
Birgir Ármannsson, alþingismaður. MYND/365

Lögð verður fram lagabreyting á núverandi kjörtímabili í samræmi við samþykkt kirkjuþings í morgun um að leyfa prestum að staðfesta samvist samkynhneigðra að sögn Birgis Ármannssonar, formanns allsherjarnefndar Alþingis. Hann segir þó ekki liggja fyrir hvenær málið kemur til kasta Alþingis.

„Það er vikið að þessu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar," sagði Birgir Ármannsson, alþingismaður og formaður allsherjarnefndar, í samtali við Vísi. „Hins vegar liggur ekki ennþá fyrir hvenær eða með hvaða hætti þetta mál kemur til kasta Alþingis. Það verður unnið í þessu á kjörtímabilinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×