Vildi óska þess að geta boðið bláan Opal Gunnar Valþórsson skrifar 25. október 2007 13:34 Það eru margir sem sakna bláa Opalsins.
Blár Opal á sér greinilega marga aðdáendur þó nokkur ár séu liðin frá því framleiðslu hans var hætt. Á Netsamfélaginu Facebook hefur nú verið stofnuð síða þar sem Nói og Síríus er hvatt til að hefja sölu á ný. Tæplega tvöþúsund manns, hvaðanæva að úr heiminum, hafa skráð sig á síðuna. Gunnar B. Sigurgeirsson, markaðsstjóri Nóa Síríus segir erfitt að segja til um hvort von sé á endurkomu sælgætisins en hann vonar það besta. „Þessar áskoranir eru okkur vissulega hvatning en ég veit ekki hvort okkur takist að endurvekja bláa Opalinn," segir Gunnar. Hann segir ástæðuna fyrir því að blár Opal hafi farið úr umferð vera þá að framleiðslu var hætt á ákveðnu bragðefni. „Það var þetta tiltekna bragðefni sem gaf þetta sérstaka bragð," segir Gunnar. „Við gerðum ýmsar tilraunir og eydddum talsverðum fjármunum í þróunarvinnu sem miðaði að því að búa þetta bragð til með öðrum ráðum en þær tilraunir báru bara því miður ekki árangur." Því hefur verið haldið fram að ástæðan fyrir því að gottið var tekið af markaði hafi verið sú að það innihélt svefnlyfið klóróform. „Það er rétt að það var klóroform í bláum Opal og við þyrftum undanþágu frá reglum til þess að fá að nota það, en það er fyrst og fremst þetta ákveðna bragðefni sem gerir útslagið, ekki klóróformið," segir Gunnar. Gunnar segir að í stað þess að bjóða upp á Bláan Opal með einhverju „gervi" bragði hafi Nói því ákveðið að hætta framleiðslunni alfarið. „En þessi mikli áhugi sem virðist vera fyrir því að blár Opal snúi aftur er okkur vissulega hvatning og við söknum þess mjög að geta ekki boðið upp á þetta, þannig að hver veit nema okkur takist að ráða gátuna um bláa Opalinn," segir Gunnar B. Sigurgeirsson, markaðstjóri hjá Nóa Síríus. Hér má skrá sig á listann á Facebook.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Sjá meira