Geta ekki keppt við nýsjálenska bændur vegna ólíkra aðstæðna 25. október 2007 12:57
Þótt íslenskir bændur fái hæstu styrki í heima en nýsjálenskir bændur nær enga styrki munu þeir íslensku aldrei geta keppt við starfsbræður sína á Nýja-Sjálandi, að mati hagfræðings Bændasamtaka Íslands. Íslenskir neytendur eygja þó von um verðlækkun á lambakjöti með afnámi útflutningsskyldu á næsta ári. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, bendir á að Nýsjálendingar búi við allt aðrar aðstæður en Íslendingar. „Þetta er grasræktarland, eitthvert besta í heimi, og þarna geta skepnur gengið úti árið um kring og bændur búa með mun stærri bú og hugsa öðruvísi um sinn bústofn," segir Erna. Hún bendir á að hér sé hins vegar nánast einstaklingsumhyggja um hvert dýr og það þurfi að kosta miklu meira til í fóðuröflun og öllum aðbúnaði fyrir skepnur. „Við munum alla vega aldrei, hvað sem styrkjum líður, geta keppt við Nýsjálendinga í verði," segir Erna enn fremur. Erna segir þó aðspurð að Íslendingar geti lært ýmislegt af Nýsjálendingum, til dæmis í rekstri afurðarstöðva og í markaðsmálum. Þá geti Íslendingar verið með stærri og hagkvæmari bú en á móti komi að Nýsjálendingar þurfi ekki hús fyrir öll dýrin. Þannig séu kýr geldar hluta af árinu og gangi úti. Útflutningsskylda af lambakjöti sem lögð hefur verið á bændur verður aflögð á næsta ári og segir Erna aðspurð að það geti ekki annað en aukið samkeppni á kjötmarkaði. „Framleiðsla á lambakjöti er meiri en innanlandsmarkaðurinn tekur við, verðið er hins vegar hærra en útflutningsverð gefur þannig að það er eftir einhverju að slægjast að selja sem mest af kjötinu á þessum markaði," segir Erna og bætir við að það leiði væntanlega til verðlækkunar.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Sjá meira