Innlent

Hrefnuveiðimenn hættir veiðum á þessu ári

Hrefnuveiðibátarnir eru hættir veiðum á þessu ári þótt 23 dýr séu óveidd af kvótanum.

Fram kemur á heimasíðu Félags hrefnuveiðimanna að 45 dýr hafi veiðst í ár og að allt kjöt af þeim sé þegar selt til verslana og veitingahúsa. Salan hafi gengið mun betur en undanfarin ár.

Veður hefur verið óhagstætt til veiðanna síðustu daga og dagsbirtu nýtur skemur og skemur með hverjum deginum sem líður. Auk þess bíði önnur verkefni bátanna þannig að veiðunum hafi verið hætt þótt þær hafi mátt standa út mánuðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×