Fagnar niðurstöðu Kirkjuþings 25. október 2007 11:46 Frá fundi Kirkjuþings í morgun. MYND/Stöð 2
Kristín Þórunn Tómasdóttir, ein þeirra sem lögðu fram tillögu á Kirkjuþingi um að prestum Þjóðkirkjunnar verði heimilt að vígja staðfesta samvist samkynheigðra, fagnar niðurstöðu Kirkjuþings í dag. Þingið samþykkti tillögu biskups sama efnis en tillaga Kristínar og félaga var dregin til baka.Aðspurð hvers vegna tillagan hafi verið dregin til baka segir Kristín Þórunn að það hafi verið vegna þess að tillögurnar tvær hafi verið efnislega samhljóða. Hún og fleiri hafi sent inn tillögu sína fyrir 19. september eins og reglur gerðu ráð fyrir en með því hafi þau viljað tryggja að málið yrði tekið fyrir á Kirkjuþinginu. Biskup hefði lagt fram sína tillögu litlu seinna en það hefði honum verið heimilt samkvæmt reglum Kirkjuþings.Mjög stórt skref miðað við hvað skoðanir eru skiptarÍ tillögu biskups, sem samþykkt var, er gert ráð fyrir að þjóðkirkjan standi við hefðbundinn skilning á hjónabandinu sem sáttmála karls og konu. Nokkuð var deilt um þann hluta tillögunnar á Kirkjuþingi á mánudag og segir Kristín að hún og fleiri hafi ekki viljað loka á umræðu um skilgreiningu á hjónabandinu. „Eftir samræður og samtöl sættumst við hins vegar á tillögu biskups og við ákváðum að láta þetta ekki koma í veg fyrir þetta stóra skref sem staðfest samvist samkynhneigðra er. Þetta er mjög stórt skref og miðað við það hvað það eru skiptar skoðanir um málið. Þetta er sannarlega gleðidagur," segir Kristín.Aðspurð segir Kristín að næsta skref í málinu sé að Alþingi breyti lögum á þann veg að prestum verði heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra. „Þessi tillaga þýðir að samkynhneigðir fá fulla kirkjulega þjónustu líkt og gagnkynhneigðir. Við bíðum bara eftir að Alþingi breyti lögunum," segir Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjá meira