Innlent

Féll á milli skips og bryggju

MYND/Vilhelm

Maður féll á milli skips og bryggju í höfninni á Reyðarfirði í nótt. Félagi hans kallaði í talstöð skipsins eftir aðstoð, en hafði sjálfur náð að bjarga manninum upp áður en hjálp barst.

Þeir voru báðir fluttir á heilsugæslustöð til aðhlynnningar en eru báðir að ná sér. Ekki er nánar vitað hvernig þetta atvikaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×