Innlent

Mikill eldur var í húsi við Hilmisgötu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Vel gekk að slökkva eld sem kviknaði í þriggja hæða húsi við Hilmisgötu í Vestmannaeyjum á fimmta tímanum. Slökkvistarfi er lokið samkvæmt upplýsingum lögreglu. Eldurinn kom upp í íbúð á annarri hæð. Íbúðir á annarri og þriðju hæð voru mannlausar þegar eldurinn kviknaði. Fólk sem var í íbúð á jarðhæð var komið út er slökkvilið bar að og sakaði engan. Samkvæmt lögreglu var talsvert mikill eldur í íbúðinni en ekki er vitað hvort húsið sé ónýtt. Ekki er vitað um eldsupptök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×