Innlent

Segja skógeyðingu blasa við á Hólmsheiði

Frá Hólmsheiði.
Frá Hólmsheiði. MYND/Vilhelm

Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur leggst alfarið gegn fyrirhuguðum byggingarframkvæmdum á Hólmsheiði og skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða aðalskipulag borgarinnar með það fyrir augum að finna aðrar lausnir en að ganga á verðmæt útivistarsvæði. Þetta kemur fram í umsögn félagsins um tillögu að nýju deiliskipulagi á Hólmsheiði.

Bent er á að um sé að ræða 170 hektara svæði sem sé fullgróðursett trjám og með framkvæmdunum muni hálf milljón trjáplatna eyðast. Þá er bent á að skógrækt hafi gengi framar björtustu vonum á svæðinu og að hún sé á engan hátt tilviljanakennd „heldur unnin af Skógræktarfélagi Reykjavíkur undir yfirstjórn embættis Borgarverkfræðings sem er nú heitir Framkvæmdasvið og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar," segir í umsögninni.

Skógræktarfélagið bendir enn fremur á að í rúm 20 ár hafi reykvísk ungmenni í Vinnuskóla Reykjavíkur og hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur unnið í sumarvinnu við þessa skóggræðslu en með skógeyðingunni yrði miklum vinnukostnaði fórnað.

Þá segir félagið að í kynningu á deiliskipulagstillögununum hafi verið verið lögð mikil áhersla að mið væri af því skóglendi sem vaxið hefur upp og leitaðist við að samtvinna það við hönnun svæðisins. Telur stjórn Skógræktarfélagsins það lofsvert en að eyðileggingin verði nánast alger frá skógræktarsjónarmiðum. Það byggist meðal annars á fyrri reynslu í bæði Ártúnsholti og Grafarholti, en þar hafi loforð verið svikin.

Telur Skógræktarfélagið uppbygginguna aðeins upphafið að því að leggja Austurheiðarnar allar undir byggingarframkvæmdir á næstu árum og áratugum. Stjórn Skógræktarfélagsins mælir því eindregið með heildarendurskoðun á aðalskipulagi fyrir svæðið.

Loks bendir Skógræktarfélagið á að skógeyðingin á þessum 170 hekturum samsvari losun á um 13.400 tonnum af koltvísýringi „og er það losun sem koma þyrfti til frádráttar losunarheimildum í bókhaldi Íslands gagnvart Kýótósamningnum og loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna," segir í umsögn Skógræktarfélags Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×