Innlent

Vinna hafin við nýtt varðskip

Smíði nýs varðskips hófst, í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile, þann 16. október síðastliðinn. Byrjað var að skera til stál í fyrsta hluta skipsins sem hafist verður handa við að smíða á næstu dögum.

Skipið verður smíðað í samtals 40 einingum. Áætlað er að fyrsti hluti skipsins verði settur í sjósetningarbraut um miðjan febrúar 2008 og að skipið verði afhent Landhelgisgæslunni í lok september 2009.

Varðskipið verður 93,65 metrar að lengd og 16 metrar að breidd. Í því verða 2, Bergen diesel 4500 Kw aðalvélar. Ganghraði skipsins verður 19,5 sjómílur á klukkustund og togkraftur þess um 100 tonn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×