Þykja hafa sloppið ótrúlega vel í ofsahraðaslysi 24. október 2007 11:58
Það þykir ganga kraftaverki næst að karl og kona skyldu hafa sloppið lítið meidd og ekki hafa skaðað aðra þegar bíll þeirra fór bókstaflega í tætlur á ofsahraða á Kringlumýrarbrautinni seint í gærkvöldi. Fyrst lenti bíllinn á steinstólpum á milli akreina en við það rifnuðu flest hjólin ásamt öllum búnaði undan honum. Síðan þeyttist vélin og gírkassinn úr honum og á 200 metra kafla skildi hann eftir sig slóð af braki uns hann lenti á ljósastaur sem brotnaði niður á götuna. Við það valt bíllinn og hafnaði loks á hvolfi á öfugum vegarhelmingi. Minnstu munaði að hann lenti fljúgandi á bíl sem kom á móti en ungri konu sem ók honum tókst með snarræði að víkja bíl sínum undan. Henni var svo brugðið að hún gat ekki ekið eftir það. Þá þeyttist brak úr bílnum, sem er stór og nýlegur BMW, á annan bíl, með þeim afleilðingum að hann varð óökufær eftir. Engin meiddist í honum. Það tók slökkvilið, lögreglu og bílaflutningamenn rúmar tvær klukkustundir að hreinsa vettvanginn. Allt bendir til að bíllinn hafi verið á ofsahraða þegar ökumaðurinn missti stjórn á honum. Léleg dekk undir bílnum kunna að skýra það eitthvað en ökumaðurinn er líka grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og var auk þess sviptur ökuréttindum nýverið.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira