Ekkert barnaklám í tölvu Ágústs Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. október 2007 19:55 Ágúst Magnússon er enn á Litla hrauni.
Ekkert barnaklám fannst við leit í tölvu Ágústs Magnússonar, dæmds barnaníðings, að sögn Brynjars Níelssonar skipaðs verjanda hans. Lögreglan haldlagði tölvu hans fyrir tíu mánuðum síðan og er rannsókn lokið á gögnum sem í henni voru. Ágúst er einn þeirra sem staðinn var að því að sækjast eftir samskiptum við ólögráða stúlku í svokölluðu Kompásmáli. Þrátt fyrir að dæmt hafi verið í máli þriggja manna í dag vegna samskipta þeirra við Kompástálbeituna er mál Ágústs enn í rannsókn og var hann í skýrslutöku hjá lögreglu í dag. Ágúst sótti um reynslulausn fyrir mánuði síðan en þá var beiðni hans hafnað á þeirri forsendu að mál hans væri ennþá í rannsókn. Brynjar Níelsson segir það vera mjög óalgengt að menn afpláni jafn stóran hluta af dómum og Ágúst er þegar búinn að gera. Brynjar segir að Ágúst óttist að rannsóknin á máli hans sé látin dragast gagngert til þess að koma í veg fyrir að hann fái reynslulausn úr fangelsi. Engin önnur skýring hafi verið gefin á töfum á rannsókn í máli hans. Þessu höfnuðu Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri og Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar Vísir hafði samband við þá.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Sjá meira