Innlent

Orkuveitan krafði viðskiptavini um margfalt vanskilagjald

Orkuveita Reykjavíkur krafði suma viðskiptavini sína um margfalt vanskilagjald af einum og sama greiðsluseðlinum. Dæmi eru um að viðskiptavinir hafi verið krafðir um þúsundir króna þegar krafan átti einungis að vera 450 krónur. Orkuveitan segir að þetta hafi verið mistök.

Fjölmörgum viðskiptavinum Orkuveitunnar var mjög brugðið á dögunum, en þeir sem ekki náðu að greiða á gjalddaga fengu tilkynningu frá fyrirtækinu um vanskil á greiðsluseðli sem er ósköp eðlilegt.

Það sem var sérstakt er að krafa var gerð um vanskilagjald á hvern einasta lið greiðsluseðilisins í stað þess að vanskilagjaldið væri eitt og einungis sett á heildarupphæðina, en ekki á hverja sundurliðun.

Fyrir innheimtuseðil sem fréttastofan hafði í höndum voru sendir fimm áminningarseðlar um að 450 króna vanskilagjald yrði lagt á hvern og einna eftirfarandi liða: Fyrir notkun á rafmagni í bílskúr, fyrir notkun á rafmagni í sameign, fyrir notkun á rafmagni í rishæð og fyrir notkun á heitu vatni. Einnig er vanskilagjald lagt á hið umdeilda seðilgjald sem er hærra en seðilgjaldið sjálft.

Viðskiptavinur Orkuveitunnar sem átti að fá kröfu upp á 450 krónur í þessu tilviki fékk þannig kröfu uppá 2,250 krónur.

Sigurður Sigurðsson, hjá innheimtudeild Orkuveitunnar, segir að hér hafi ekki verið um raunverulegar kröfur að ræða á hendur viðskiptavinum, heldur urðu mistök sem réðu því að vanskilaseðlarnir fóru út með þessum hætti. Orkuveitan fékk nýlega nýja prentsmiðju til að vinna greiðsluseðlana og þetta varð niðurstaðan.

Sigurður sagði að viðskiptavinum hefði í raun ekki verið unnt að greiða þessar kröfur því þær hefðu aldrei verið stofnaðar á þá í bókhaldi fyrirtækisins. Í samtali við fréttastofu mælti hann með því að viðskiptavinir tækju upp beingreiðslu- eða boðgreiðsluþjónustu við að greiða kröfur frá Orkuveitunni en með því félli seðilgjaldið umdeilda niður og miklu meiri líkur yrðu á að reikningar yrðu greiddir á gjalddaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×