Öryggiskerfi í sundlaug yfirfarið eftir banaslys 23. október 2007 16:56 Frá framkvæmdum við Sundlaug Kópavogs í fyrra.
Öryggiskerfi Sundlaugar Kópavogs hefur verið vandlega yfirfarið eftir sviplegt slys síðastliðið vor sem dró ungan pilt í skólasundi til dauða. Niðurstaða lögreglurannsóknar var að um slys hefði verið að ræða og staðfesti ríkissaksóknari hana. Strax eftir slysið voru allir öryggisþættir skoðaðir og yfirfarnir, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Kópavogsbæ. „Öryggiskerfi laugarinnar er tvískipt. Annarsvegar er eftirlit með myndavélum sem eru hjálpartæki og hinsvegar laugarvarsla þar sem laugin er skimuð af laugarvörðum. Farið var yfir myndavélaeftirlitið og upptaka tengd við myndavélar undir vatnsyfirborði. Enn fremur var ákveðið að laugarverðir gangi nær bakkanum en áður til að greina betur allt sem er næst honum. Þá var haldinn fundur með skólastjórnendum, sundkennurum og forstöðumönnum sundlauga auk starfsmanna skólaskrifstofu og íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs um öryggi á sundstöðum, viðbrögð þegar slys ber að höndum og samráð hlutaðeigandi aðila," segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að allt öryggiskerfi Sundlaugar Kópavogs verði yfirfarið og endurskoðað þegar nýbygging laugarinnar verður tekin í notkun á næsta ári. Nauðsynlegt verði að samkeyra alla öryggisþætti við nýtt mannvirki. Einnig verði haldinn samráðsfundur með sundkennurum, forstöðumönnum sundlauga og vaktstjórum í byrjun næsta árs og muni þeir samráðsfundir verða fastur liður á hverju hausti hér eftir. Á þessum fundum verður farið yfir gildandi verkferla og neyðaráætlanir sundlauganna.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Sjá meira