Innlent

Réðst að lögreglumönnum í Leifsstöð

MYND/Teitur

Lögregla á Suðurnesjum yfirheyrði í dag karlmann sem handtekinn var á öðrum tímanum í nótt í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Hann hafði verið með æsing og uppsteyt við tollverði auk þess sem hann veittist að lögregluþjónum sem hugðust ræða við hann. Maðurinn, sem var ölvaður, var handtekinn og fékk að sofa úr sér áfengisvímuna en var yfirheyrður í dag.

Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni að manninum hefði verið sleppt en ekki liggur fyrir hvort hann verður ákærður fyrir ólætin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×