Stuðningur við landbúnað mestur á Íslandi 23. október 2007 18:30
Stuðningur við landbúnað í heiminum er mestur á Íslandi og er hann metinn á fimmtán milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt skýrslu OECD sem birt var í dag. Athygli vekur að kjúklingabændur njóta mests ríkisstuðnings hérlendis hlutfallslega, mun meiri stuðnings en kúa- og sauðfjárbændur.Íslenskir bændur tróna nú einir á toppnum sem mestu styrkþegar meðal bænda heims, samkvæmt nýjustu tölum, sem eru fyrir árið 2006. Árið áður deildu þeir efsta sætinu með svissneskum bændum. Við mat á stuðningi við landbúnað reiknar OECD bæði bein fjárframlög hins opinbera sem og stuðning sem felst í innflutningsvernd.Tölurnar sýna að Íslandi teljast 66 prósent af tekjum bænda vera í formi ríkisstuðnings. Noregur er með 65% en síðan koma Sviss með 63%, Kórea með 63% og Japan með 53%. Í Evrópusambandinu eru styrkir til landbúnaðar nú helmingi lægri en á Íslandi, eða 32 prósent af tekjum bænda. Styrkirnir eru mun lægri í Kanada, 23%, og Bandaríkjunum, 11%, en allra lægstir í Ástralíu, 6%, og á Nýja-Sjálandi, 1%. Meðal styrkjahlutfallið í OECD-ríkjum er 27 prósent.Heildarstuðningur við íslenskan landbúnað reiknast hafa verið 14.845 milljónir króna á síðastliðnu ári. Tæplega helmingur, eða 7,1 milljarður, var vegna mjólkurframleiðslu, um 2.500 milljónir vegna kindakjöts, um 1600 milljónir vegna alifuglakjöts, um 850 milljónir vegna svínakjöts, 460 milljónir vegna nautakjöts, 340 milljónir vegna eggja og í annað liðlega 800 milljónir.Helstu rök fyrir stuðningi við landbúnað hérlendis hafa jafnan verið þau að verið væri að verja byggð í dreifbýli. Því er athyglisvert að kjúklingarækt, sem mest er stunduð í nágrenni Reykjavíkur, er sú grein sem mesta stuðninginn fær af hálfu íslenska ríkisins. Nærri 85 prósent af tekjum alifuglabænda eru raktar til ríkisstuðnings. Í mjólkinni er hlutfallið um 74 prósent og í eggjum 68 prósent. Af tekjum sauðfjárbænda er um helmingur talinn vegna ríkisstuðnings, hlutfallið hjá svínabændum svipað, en hjá nautakjötsframleiðendum er styrkjahlutfallið nokkru lægra eða liðlega 40 prósent.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Sjá meira