Innlent

Höfuðkúpubraut konu með öskubakka

Mynd/Vísir

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Vestmannaeyjum á sunnudag grunaður um að hafa slegið konu á fertugsaldri í höfuðið með gleröskubakka þannig að hún höfuðkúpubrotnaði.

Eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni frá Vestmannaeyjum er talið að atvikið hafi átt sér stað í heimahúsi í Eyjum að morgni sunnudagsins. Konan leitaði hins vegar ekki aðstoðar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja fyrr en um kvöldið og var hún þá lögð inn vegna þeirra áverka sem hún hlaut. Hún er nú komin heim af sjúkrahúsinu.

Maðurinn sem grunaður er um árásina var handtekinn á sunnudagskvöld á veitingastað í bænum og hefur hann verið yfirheyrður. Lögregla segir framburð aðila málsins mjög óljósan og hefur konan ekki enn viljað leggja fram formlega kæru. Lögregla rannsakar samt sem áður málið áfram þar sem um beinbrot er að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×