Bara tryggður fyrir tapi verði forsendubrestur af hálfu OR 23. október 2007 12:38 Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI. MYND/Stefán
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem því er haldið fram að fullyrðing Moggans á forsíðu blaðsins í dag, um samning Bjarna við OR, sé röng. „Fullyrðing Morgunblaðsins í dag um að í samningi Orkuveitu Reykjavíkur við Bjarna Ármannssonar, vegna aðkomu hans að Reykjavik Energy Invest felist „að hann gæti selt 500 milljóna króna hlut sinn, sem hann keypti upphaflega í REI, á genginu 1,278 aftur á sama verði ef hann kysi að hverfa frá félaginu," er röng," segir í yfirlýsingunni. „Í áðurnefndum hluthafasamningi Orkuveitunnar og Bjarna Ármannssonar eru lagðar forsendur samstarfs þessara aðila. Þær varða stjórnarformennsku Bjarna í félaginu, inntöku nýrra hluthafa og breytingar á samþykktum þess," segir einnig, og því bætt við að „einungis ef forsendubrestur verður í samstarfinu af hálfu Orkuveitu Reykjavíkur, getur Bjarni Ármannsson átt þess kost að selja OR sinn hlut á kaupverði með verðbótum. Þessi skuldbinding fellur sjálfkrafa niður við áformaða skráningu REI á markað." Þá segir að á fundi stjórnar OR í gær hafi verið tekin fyrir beiðni stýrihóps Reykjavíkurborgar um aðgang að gögnum vegna REI mála. „Ákvað stjórn OR að verða við beiðninni og var samningur OR við Bjarna eitt þeirra gagna sem starfsmanni stýrihópsins var látið í té í morgun."
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira