Innlent

Utanríkisráðherra óskaði eftir uppsögn Ólafs Arnar

MYND/E.Ól

Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Ratstjárstofnunar, segir ekki það ekki rétt sem fram hafi komið í fréttum að hann hafi gengið á dyr án þess að upplýsa utanríkisráðuneytið um það.

Í yfirlýsingu frá Ólafi kemur fram að utanríkisráðherra hafi ákveðið að ráða nýjan forstjóra til þess að taka við stofnuninni í breyttri mynd og hafa forystu um þær breytingar sem nú standa yfir. Eins og kunnugt var öllum starfsmönnum stofnunarinnar sagt upp í sumar um leið og Íslendingar tóku við rekstri Ratstjárstofnunar en yfirvöld leita leiða til að draga úr kostnaði við rekstur stofnunarinnar.

Ólafur segir enn fremur í yfirlýsingunni að utanríkisráðherra hafi tilkynnt honum í upphafi þessa mánaðar að til stæði að ráða nýjan forstjóra og á fundi föstudaginn 12. október hafi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir óskað hefði því að hann léti af störfum um þá komandi helgi. Hann hafi því kvatt starfsfólkið í byrjun síðustu viku og sent ráðherra og ráðuneytisstjóra tölvupóst um að hann hefði látið af störfum eins og óskað hefði verið eftir.

„Ráðuneytinu var því ekki aðeins kunnugt um starfslok mín heldur voru þau ákvörðun ráðherrans og á þeim tíma sem ráðherrann óskaði og tilkynnt bæði honum og ráðuneytisstjóra skriflega með tölvupósti," segir Ólafur í yfirlýsingu sinni.

Þá segir Ólafur að bæði utanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri hafi tekið sérstaklega fram á fundum sínum að ánægja ríkti með störf hans hjá Ratsjárstofnun, sérstaklega með þann árangur sem hann ásamt frábæru starfsliði hefði náð í hagræðingu á rekstri stofnunarinnar, eins og fram hefði komið í fréttatilkynningu Utanríkisráðuneytisins.

Óskar Ólafur starfsmönnum og nýjum forystumönnum Ratsjárstofnunar velfarnaðar í áframhaldandi uppbyggingu stofnunarinnar og þakka gott samstarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×