Innlent

Ekkert lát á síldveiðinni á Grundarfirði

Ekkert lát er á síldveiðinni á Grundarfirði. Nokkur skip, sem voru þar í gær, náðu að fylla sig og eru á landleið og Hákon liggur úti fyrir Ólafsvík og er áhöfnin að frysta síld um borð. Hin skipin sigla með síldina ferska alla leið til Austfjarðahafna.

Þessi mikla síldarganga inn á Grundarfjörð kemur mönnum á óvart en sáralítið sést af síld á hefðbundnum miðum út af suðurströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×