Innlent

Dómur fellur í stóra BMW-málinu á næstunni

Sakborningar huldu andlit sitt við aðalmeðferð stóra BMW-málsins í Héraðsdómi.
Sakborningar huldu andlit sitt við aðalmeðferð stóra BMW-málsins í Héraðsdómi. MYND/HÖRÐUR

Hæstiréttur mun kveða upp úrskurð sinn í stóra BMW-málinu á næstunni. Þrír af fjórum sakborningum í þessu gríðarstóra fíkniefnamáli áfrýjuðu dómum sínum í héraði og tók Hæstiréttur málið fyrir í síðustu viku.

Málavextir eru þeir að fjórir menn, Hörður Eyjólfur Hilmarsson, Hollendingurinn Johan Hendrik, Ársæll Snorrason og Ólafur Ágúst Ægisson, voru handteknir í tengslum við innflutning á 15 kílóum af amfetamíni og 10 kílóum af hassi í bensíntanki BMW-bifreiðar í apríl 2006.

Hörður Eyjólfur og Johan Hendrik voru dæmdir í sex ára fangelsi og þeir Ársæll og Ólafur Ágúst voru dæmdir í fjögurra ára fangelsi. Auk þess var fjóru og hálfu ári bætt við dóm Ólafs Ágústs. Hann fékk reynslulausn árið 2005 eftir að hafa afplánað helming af níu ára dómi sem hann fékk fyrir aðild sína að stóra fíkniefnamálinu árið 2000.

Hörður Eyjólfur, Ársæll og Ólafur Ágúst áfrýjuðu allir sínum dómum en Hollendingurinn ákvað að áfrýja ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×