Innlent

Kókaínský á Akranesi

MYND/Hari

Hvítt ský liðaðist aftur úr bíl, rétt áður en hann nam staðar að skipan lögreglunnar á Akranesi um helgina.

Enginn í bílnum vildi kannast við skýið, en lögreglumenn á ómerktum bíl, sem fylgdust með aðdraganda málsins, sáu hvar hendi kom út um afturglugga bílsins og hvítu dufti var sturtað úr poka.

Sýni voru tekin af afturenda bílsins og reyndist þetta vera kókaín. Hrundu þá varnir þeirra, sem í bílnum voru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×