Deila um skipulag Álftaness 21. október 2007 18:58
Bæjarstjórinn á Álftanesi kom í veg fyrir að deiliskipulag bæjarins væri rætt á bæjarstjórnarfundum, segir oddviti minnihlutans í bænum. Bæjarstórinn segir minnihlutann enn í sárum eftir síðustu kosningar. Nýr meirihluti tók við völdum á Álftanesi í síðustu kosningum eftir nauman sigur en aðeins munaði þremur atkvæðum á Á-lista og lista Sjálfstæðisflokksins. Miklar deilur spruttu upp innan bæjarfélagsins árið 2005. Þá vildi Á-listi að íbúar fengju að kjósa um skipulag svæðisins en nú vilja sjálfstæðismenn slíka kosningu. Þar með hafa deilur sprottið upp á nýjan leik innan bæjarfélagsins og sitt sýnist hverjum. Meirihlutinn segir að hann hafi lofað því í kosningunum að fram myndi fara skipulagskeppni og að niðurstöðunum úr henni yrði hrint í framkvæmd. Minnihlutinn hafi haft nægan tíma til að gera athugasemdir við það en ekki gert. Guðmundur G. Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Álftaness, segir Sigurð Magnússon bæjarstjóra hafa komið í veg fyrir að umræður um málið færu fram í bæjarstjórn. Búið sé að gera veigamiklar breytingar á því skipulagi sem vann keppnina og því eigi íbúar að fá að kjósa um nýja deiliskipulagið. Sigurður segist ekki skilja hvers vegna þessi gagnrýni komi upp á yfirborðið núna. Það sé líklega vegna þess að menn séu enn í sárum eftir kosningaúrslitin í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira