Innlent

Bílvelta við Hraunhellutorg

Einn var fluttur á slysadeild eftir bílveltu við Hraunhellutorg í Hafnarfirði um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglu er ekki vitað hversu alvarlega maðurinn er slasaður.

Þá var umferðaróhapp á Réttarholtsvegi rétt eftir klukkan fjögur í dag en enginn slasaðist þar, að sögn lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×