Innlent

Andvaraleysi bílstjóra á sök á mörgum alvarlegum bifhjólaslysum

Andvaraleysi bílstjóra á stóran þátt í mörgum mjög alvarlegum bifhjólaslysum hér á landi. Tvö banaslys á þessu ári má rekja til þess að bifreið var ekið í veg fyrir bifhjól á ferð. Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur birt skýrslu um banaslys á Akrafjallsvegi í júlí í sumar þar sem þessi var raunin en strætisvagni var þá ekið í veg fyrir bifhjól.

Þrjú banaslys hafa orðið í umferðinni á árinu þar sem ökumenn bifhjóls hafa látist.

Í skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa er ábending til ökukennara sem kenna á akstur bifhjóla að leggja mikla áherslu á þjálfun í að sveigja frá hættu.

Umferðarstofa vinnur nú að gerð fræðluefnis um samspil ökumanna bifreiða og bifhjóla í umferðinni. Þar er áhersla lögð á að ökumenn gái ekki bara, heldi aki ekki inn á akbraut fyrr en þeir sjái og fullvissi sig um að ökutæki séu ekki of nærri.

Fjöldi slysa hafa orðið á landinu á þessu ári þar sem bifreið hefur verið ekið í veg fyrir bifhjól.

Í maí slasaðist ungur ökumaður bifhjóls alvarlega í Njarðvík þegar bifreið var ekið í veg fyrir bifhjól hans. Honum var vart hugað líf um tíma en hann er nú í endurhæfingu á Grensásdeild.

Á Akureyri varð slys í júni þegar ekið var í veg fyrir létt bifhjól. Kona sem ók hjólinu féll á götuna og fékk mikið höfuðhögg en hjálmurinn kastaðist af henni.

Slys varð á Reykjanesbraut í september þegar tveir bifhjólamenn féllu á jörðina þegar fólksbifreið var ekið í veg fyrir fjögur bifhjól.

Bifhjólum hefur fjölgað gríðarlega á Íslandi að undanförnu og svo virðist sem ökumenn bifreiða séu ekki vanir þessari tegund ökutækja í umferðinni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×