Innlent

ASÍ krefst að bætur verði aldrei lægri en 150 þúsund krónur

Alþýðusambandið gerir kröfur um að stjórnvöld tryggi lága verðbólgu og vaxtakjör eins og þau eru í nágrannalöndum. ASÍ ætlar að berjast sérstaklega fyrir kjörum þeirra lægst launuðu í næstu kjarasamningum. Þetta var samþykkt á ársfundi ASÍ sem lauk nú síðdegis.



Á ársfundinum var krafist að launafólk fái meiri hlutdeild í aukningu þjóðartekna.

Ársfundurinn lagði áherslu á að samið verði um aukinn kaupmátt í komandi kjarasamningum. ASÍ vill að lægstu laun hækki sérstaklega, auk þess sem tekið verði af festu á launamisrétti kynjanna.

Fundurinn telur áríðandi að stjórnvöld komi sérstaklega til móts við lág- og millitekjufólk með aðgerðum í skatta-, velferðar- og menntamálum.

ASÍ vill að skattbyrði þeirra tekjulægri verði lækkuð. Þá var samþykkt á fundinum að sérstakt átak verði gert í málefnum barnafjölskyldna, í húsnæðismálum og dregið verði úr tekjutengingum velferðarkerfisins. ASÍ er með tillögu um að skilgreina lágmarksviðmiðun bóta út frá tekjudreifingu, sem í dag myndu þýða 150 þúsund króna lágmarksbætur á mánuði.

Samþykkt var krafa á stjórnvöld um að tryggja efnahagslegan stöðugleika

með lágri verðbólgu, sambærilegum vaxtakjörum og í nágrannalöndunum og stöðugu gengi.

Þeir sem kjörnefnd ársfundar ASÍ lagði til að yrðu kjörnir í miðstjórn ASÍ náðu kjöri á ársfundinum. Flest atkvæði hlaut Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins.

Signý Jóhannesdóttir, fulltrúi Starfsgreinasambandsins, tapaði hins vegar fyrir Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur, núverandi varaforseta, í baráttu um embætti varaforseta. Ingibjörg er fulltrúi verslunarmanna í forystu ASÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×