Innlent

Össur og REI-toppar með skrúfuvél

Það verður ekki einkaþota heldu tveggja hreyfla skrúfuvél sem flytja mun Össur Skarphéðinsson og forráðamenn REI á milli Jakarta og Manila í næstu viku. Vélin er tekin á leigu í Jakarta í þessu skyni.

Eins og fram hefur komið í fréttum Vísi mun iðnaðarráðuneytið greiða hlut Össurar í þessu flugi. Alls verða níu manns um borð og verður hlutur iðnaðarráðuneytisins því níundi hluti af leiguverðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×