Innlent

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að kýla og hóta lögreglumönnum

Hérðasdómur Norðurlands eystra dæmdi í morgun karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá lögregluþjón og hóta þremur lögreglumönnum lífláti.

Lögregla hafði afskipti af manninnum á bílastæði við verslun á Akureyri fyrir um ári og brást hann þá hinn versti við. Kýldi hann einn lögreglumann í andlitið með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn bólgnaði meðal annars í fram. Í lögreglubíl á leið af vettvangi hótaði hann svo þremur lögreglumönnum lífláti og sömuleiðis fjölskyldum þeirra.

Maðurinn játaði sök í málinu en hann hafði einu sinni áður komist í kast við lögin vegna eignaspjalla. Þótti dómnum í ljósi þess að sakaferill hans var ekki langur að skilorðsbinda dóminn til tveggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×