Olíuleit við Jan Mayen í engu samræmi við stefnu Íslands 19. október 2007 09:48 Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. MYND/VG
Það stangast á við stefnu Íslands í loftlagsmálum að hefja olíuleit á Drekasvæðinu við Jan Mayen að mati Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann segist vera sammála norsku náttúruverndarsamtökunum í málinu. Fram kom norska ríkissjónvarpinu í gær að bæði norsku náttúruverndarsamtökin og norska umhverfisstofnunin telji að olíuvinnsla á svæðinu geti stefnt lífríkinu þar í hættu. „Samtökin hafa ekki fjallað um þetta mál sérstaklega," sagði Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, í samtali við Vísi. „Að mínu mati er það hins vegar ekki í neinu samræmi við þá stefnu Íslands að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda að fara að leita að olíu á hafsvæðinu við landið." Í norska ríkissjónvarpinu í gær var haft eftir Lars Haltbrekken, talsmanni norsku náttúruverndarsamtakanna, að hann telji varhugavert að Íslendingar hefji olíuvinnslu við Jan Mayen. Óttast hann að það kunni að stefna lífríki á svæðinu í hættu. Segist hann ennfremur ætla að leitast eftir samstarfi við íslensk náttúruverndarsamtök til að koma í veg fyrir að olíuvinnsla hefjist. Árni segist ekki hafa heyrt í Haltbrekken vegna málsins. „Við munum hins vegar taka vel í beiðni Haltbrekken."
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira