Innlent

Geir hvetur sjálfstæðismenn til samstöðu

„Enginn maður í flokknum er svo merkilegur að flokkurinn sé ekki miklu merkilegri," sagði Geir H. Haarde við fréttamann Stöðvar 2 í kvöld eftir fund Varðar - fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík með borgarfulltrúum. Hann útskýrði orð sín ekki nánar. Undanfarið hafa verið vangaveltur um framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Geir hvetur til samstöðu og stuðnings við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita sjálfstæðismanna í borginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×