Innlent

Formaður Sjálfstæðisflokksins fundaði með borgarfulltrúum og fulltrúaráðinu

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, mætti nokkuð óvænt á fund Varðar - fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík með borgarfulltrúum flokksins. Hann fór beint í ræðustól þar sem hann kynnti flokksfélögum sínum skoðanir sínar á málinu. Geir stoppaði stutt og hefur nú yfirgefið fundinn. Fyrirfram hafði ekki verið búist við þátttöku Geirs.

Lokaður fundur þeirra hófst í Valhöll klukkan hálf sex í dag. Þar fyrirhugað að halda áfram að kryfja til mergjar málefni borgarstjórnarflokksins og með hvaða lagi hann missti tökin á stjórnvelinum í borginni.

Lillý Valgerður Pétursdóttir, fréttamaður Stöðvar 2, er í Valhöll og mun segja frá gangi mála í kvöldfréttum klukkan hálf-sjö.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×