Innlent

Mjólkursamsalan fagnar því að Páli beri að víkja sæti

Páll Gunnar Pálsson víkur sæti og Mjólkursamsalan fagnar.
Páll Gunnar Pálsson víkur sæti og Mjólkursamsalan fagnar.

Mjólkursamsalan fagnar því að Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra Samkeppniseftilitsins beri að víkja sæti samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Greint var frá því í fréttum í sumar að Samkeppniseftirlitið gerði leit í húsakynnum Mjólkursamsölunnar ehf., Auðhumlu svf. og Osta- og smjörsölunnar vegna gruns um samkeppnisbrot. Málið er nú til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu og vildu forsvarsmenn félaganna að bæði Páll Gunnar og aðrir starfsmenn eftirlitsins vikju sæti.

Mjólkursamsalan ehf., Auðhumla svf. og Osta- og smjörsalan byggðu kröfu sína á því að Samkeppniseftirlitið væri vanhæft til rannsóknar og annarrar meðferðar málsins, þar sem opinberlega hafi komið fram skoðanir starfsmanna Samkeppniseftirlitsins á starfsemi stefnenda og meintu broti þeirra. Dómurinn taldi hins vegar ekki að draga mætti með réttu óhlutdrægni annarra starfsmanna stefnda í efa."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×