Innlent

Ár liðið frá brotthvarfi hersins

Varnarliðið kvatt í fyrra.
Varnarliðið kvatt í fyrra. MYND/Vilhelm

Heildarvelta Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli það ár sem íslensk stjórnvöld hafa stýrt honum er áætluð um 2,7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugmálastjórninni.

Eitt ár er nú liðið frá því að varnarliðið kvaddi landið en stjórnvöld hafa á þeim tíma endurskilgreint svæðið, staðið fyrir varnaræfingu á flugvellinum og lagt grunn að reglubundnum heimsóknum herflugvéla til varnarstarfa.

Bent er á í tilkynningu frá Flugmálastjórninni á Keflavíkurflugvelli að umsvif hennar hafi aukis stórlega og starfsmannafjöldi þrefaldast. Stjórnin rekur völlinn og sinnir flugumferð og skipulagsmálum, framkvæmdum og þjónustu á sveitarstjórnarstigi svo eitthvað sé nefnt.

Þá er bent á að flugumferð aukist ár frá ári og var sett met á liðnu ári þar sem farþegafjöldi fór í fyrsta sinn yfir tvær milljónir. Hann hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum og flugrekstrar- og þjónustuaðilar spá sambærilegri aukningu á komandi árum. Þá bætast nýir flugrekstraraðilar í hóp þeirra sem gera út flugvélar eða kjósa að hafa viðkomu á Keflavíkurflugvelli.

Unnið er að því að færa rekstur flugvallarins frá utanríkisráðuneyti til samgönguráðuneytis í árslok og fyrirhugað er að sameina Flugmálastjórnina á Keflavíkurflugvelli og Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. í eitt opinbert félag. „Með því verði stuðlað að sjálfsbærum rekstri og að tekjur nýtist í uppbyggingu flugvallarins. Jafnframt yrðu þjóðréttarlegar skuldbindingar á sviði öryggis og varnarmála uppfylltar," segir í tilkynningu frá Flugmálastjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×