Innlent

Heitu vatni aftur hleypt á í Kópavogi

MYND/Anton

Orkuveitan er nú að hleypa heitu vatni aftur á þau hverfi í Kópavogi sem urðu vatnslaus í morgun í kjölfar þess að aðalæð fyrir heitt vatn austan við Reykjanesbraut gegnt Smáralind bilaði.

Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni að búið sé að loka fyrir þann hluta aðalæðarinnar þar sem bilunin kom upp og má búast við að fullur þrýstingur verði kominn á innan tveggja klukkustunda. Fjölmennir viðgerðarflokkar voru kallaðir út vegna bilunarinnar í morgun en hún leiddi til þess að heitavatnslaust hefur verið í nýjum hverjfum Kópavogs austan Smáralindar og í vesturbæ Kópavogs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×