Milljarðaverkefni hjá REI þrátt fyrir óvissa framtíð 18. október 2007 14:16
Í næstu viku verða opnuð tilboð í 40% hlut í stærsta jarðvarmaorkufyrirtæki heims, PNOC EDC á Filippseyjum. REI er eitt þeirra fyrirtækja sem bjóða í hlutinn en reiknað er með að andvirði hans nemi um einum tug milljarða kr.. Einnig verður undirrtaður samstarfssamningur REI við fyrirtækið Pertamína um orkuvinnslu í Indónesíu. "Við höldum okkar áætlunum og markmiðum áfram þar til annað kemur í ljós," segir Hafliði Helgason talsmaður REI í samtali við Vísi. Hafliði segir að REI leiði hjá sér þær umræður og deilur sem orðið hafa um fyrirtækið á undanförnum dögum og haldi sínu striki þrátt fyrir óvissuna um framtíð fyrirtækisins. "Það er ekkert um annað fyrir okkur að ræða," segir Hafliði. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra verður viðstaddur á báðum fyrrgreindum löndum en hann heldur í vinnuferð til Indónesíu og Filippseyja nú á laugardag. Einar Karl Haraldsson aðstoðarmaður iðnaðarráðherra segir í samtali við Vísi að Össur sé að endurgjalda heimsókn orkumálaráðherra Indónesíu til Íslands fyrr í ár og viðræður við ráðherrann sé aðalástæða ferðarinnar. Sama sé upp á teningnum á Filippseyjum, það er viðræður við orkumálaráðherra þess lands. „Össur hefur áður lýst því yfir að eitt af forgangsverkefnum sínum sé að styðja við útrás Íslendinga í orkumálum og því verður hann viðstaddur þessa tvo viðburði þar sem REI kemur við sögu," segir Einar Karl.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira