Innlent

Meirihluti vill þyngri dóma

Litla - Hraun.
Litla - Hraun. MYND/Heiða

Ef marka má könnun sem Afstaða - félag fanga stóð fyrir á heimasíðu sinni vilja 84 prósent landsmanna að dómar á Íslandi verði þyngdir. í könnuninni var spurt um viðhorf fólks til þess hvort dómar hér á landi séu og langir eða stuttir.

511 tóku þátt í könnuninni og töldu 84 prósent þáttakenda að dómar væru of stuttir. 9 prósent voru á því að dómar væru of langir en 6,5 prósent þeirra sem þátt tóku sögðu að dómar væru í lagi eins og þeir eru.

Afstaða - félag fanga heldur úti öflugri heimasíðu á slóðinni timamot.is og nú hefur ný könnun verið sett í loftið á vefnum þar sem spurt er út í viðhorf fólks til þess ef fyrrverandi fangi flytur í hverfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×