Forsetinn verðlaunaður í Alaska 18. október 2007 11:27 Ólafur Ragnar Grímsson tekur við verðlaununum úr hendir Walter J., Hickel. MYND/Forseti.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gærkvöld við viðurkenningu fyrir forystu um samstarf og sjálfbæra þróun á Norðurslóðum. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Anchorage í Alaska að viðstöddum fjölmörgum þátttakendum á alþjóðlegri ráðstefnu um orkumál á Norðurslóðum og forystumönnum Alaskaríkis. Eftir því sem segir í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni bera verðlaunin heitið The Robert O. Anderson Sustainable Arctic Award en það er Norðurstofnunin (Institute of the North) sem veitir þau. Hún hefur aðalstöðvar í Anchorage. Stofnandi hennar er Walter J. Hickel, fyrrverandi ríkisstjóri í Alaska og innanríkisráðherra í ríkisstjórn Nixons Bandaríkjaforseta.Ólafur Ragnar hefur undanfarna daga tekið þátt í alþjóðlegri orkuráðstefnu, Arctic Energy Summit, sem haldin er í tilefni af Alþjóðlega heimskautaárinu. Ráðstefnuna sækir fjöldi sérfræðinga, vísindamanna og áhrifamanna frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Kanada og Norðurlöndum. Forsetinn flutti ræðu á opnunarfundi ráðstefnunnar ásamt ríkisstjóra Alaska, Söruh Palin, og öldungadeildarþingmanninum Lisu Murkowski.Þá hefur forsetinn fundað með áhrifamönnum í Alaska og kynnt jarðhitanýtingu á Íslandi. Segir í tilkynningu forsetaembættisins að aðstæður séu um margt áþekkar í Alaska og á Íslandi. Til umræðu hefur verið hvernig nýta eigi jarðhita í Spurr-fjalli í nágrenni Anchorage en þar mætti leggja reynslu Reykjavíkur af virkjunum á Nesjavöllum og Hellisheiði til grundvallar.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fleiri fréttir Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Sjá meira