Ekki verið tekin afstaða til hlutafélagavæðingar LV 18. október 2007 11:16 MYND/GVA
Forsætisráðherra segir að ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort Landsvirkjun verði gerð að hlutafélagi. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins gerði málið að umtalsefni á Alþingi í dag. Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins kvaddi sér hljóðs á Alþingi í morgun og spurði meirihlutann hvort til stæði að einkavæða Landsvirkjun. Hann vitnaði meðal annars til ummæla Friðriks Sophussonar, forstjóra fyrirtækisins sem sagðist í blaðaviðtali styðja hlutafélagavæðingu LV. Þingmaðurinn segist sjá öll merki þess að Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér í skjóli Samfylkingarinnar að einkavæða Landsirkjun. Höskuldur sagði þetta stórmál ef rétt reynist og sagði hann stefnu Framsóknarflokksins skýra, að Landsvirkjun verði áfram í eigu þjóðarinnar. Geir H. Haarde forsætisráðherra svaraði Höskuldi og sagði ekki standa til að einkavæða Landsvirkjun. Hlutafélagavæðing væri allt annað mál en ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort LV verði breytt í hlutafélag. Iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson sté einnig í pontu og benti á að það sér þætti undarlegt að heyra í framsóknarmönnum tala gegn hlutafélagavæðingu orkufyrirtækja. Hann benti ennfremur á að allir viðstaddir þingmenn Framsóknarflokks og VG hefðu á sínum tíma greitt atkvæði með því að Hitaveita Suðurnesja yrði hlutafélagavædd. Fleiri þingmenn ræddu málið í morgun, meðal annars Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins sem þakkaði fyrir skýrt svar Geirs Haarde um að ekki stæði til að einkavæða Landsvirkjun. Hann óskaði Samfylkingunni til hamingju með að ætla sér greinilega að standa í lappirnar gegn Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að einkavæðingu ríkisfyrirtækja. „Þið hafið tekið við hlutverki okkar Framsóknarmanna í því," sagði Guðni, og uppskar hlátur nokkurra þingmanna fyrir vikið.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira