Innlent

Um 430 ökumenn sektaðir fyrir hraðakstur á Sæbraut

MYND/Guðmundur

Liðlega 430 ökumenn verða sektaðir vegna hraðakstursbrota sem mynduð voru á mótum Sæbrautar og Langholtsvegar á mánudaginn var.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að fylgst hafi verið í sjö klukkustundir með ökutækjum sem óku í suðurátt eftir Sæbraut. Alls fóru rúmlega 5150 bílar þessa akstursleið á tímabilinu og óku því um átta prósent ökumanna of hratt. Við vöktun á sama stað í síðustu viku var hlutfallið sex prósent. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 kílómetrar á klukkustund sem er sama niðurstaða og fékkst við síðustu mælingu. Að þessu sinni voru 68 ökutæki mynduð á 80 kílómetra hraða eða meira en sá sem hraðast ók var á 103. Þarna er 60 kílómetra hámarkshraði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×