Innlent

Gróðurhúsalömpum stolið til kannabisræktar

MYND/E.Ól

Átta gróðurhúsalömpum var stolið úr gróðurhúsi í Hveragerði í nótt. Þetta er í þriðja eða fjórða skiptið á skömmum tíma sem brotist er inn í húsið í þessum tilgangi og telur lögreglan í Árnessýslu afar líklegt að að kannabisræktendur hafi verið á ferð.

Þeir nota gróurhúsalampa til að fjörga vöxt kannabisplantnanna og komast að jafnaði margir slíkir lampar til skila þegar þess háttar starfssemi er upprætt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×