Innlent

Aflaverðmæti íslenskra skipa eykst um ellefu prósent

Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um fimm og hálfan milljarð króna á fyrstu sjö mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Nemur aukningin nærri ellefu prósentum á milli ára. Aflaverðmætið nam alls tæpum 52 milljörðum frá janúar til júlí síðastliðins en var rúmir 46 milljarðar króna í fyrra.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júlí orðið um 38 milljarðar og jókst um nær tíu prósent milli ára. Þar af nam verðmæti þorskaafla tæpum 20 milljörðum og jókst um fimmtung milli ára. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum, sem er nærri 17 prósenta aukning.

Verð flatfiskafla dróst hins vegar saman um nærri 20 prósent en verðmæti uppsjávarafla jókst um nærri 40 prósent milli ára og var 10 milljarðar króna á fyrstu sjö mánuðum ársins. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×