Starfshópur kanni allar hliðar samruna REI og GGE 18. október 2007 09:01 MYND/GVA
Nýr meirihluti í borgarstjórn hyggst leggja fram tillögu á fundi borgarráðs sem hefst klukkan 9.30 um að stofna starfshóp undir stjórn Svandísar Svavarsdóttur sem fara á yfir samruna Reykjavik Eneregy Invest og Geysir Green Energy, en eins og kunnugt er varð málið fyrri meirihluta að falli. Fram kemur í tillögunni að gert sé ráð fyrir að oddvitar allra lista í borgarstjórn Reykjavíkur eigi sæti í starfshópnum og þá verði leitað eftir sjónarmiðum fulltrúa annarra eigenda í Orkuveitunni, það er Borgarbyggðar og Akraness. Þá verði einnig haft samráð við sveitarfélög á starfssvæði Hitaveitu Suðurnesja þar sem OR og dótturfélög eiga umtalsverðan hlut í því fyrirtæki. Sigrún Elsa Smáradótti,r verðandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, mun starfa með hópnum. Starfshópurinn á að kanna allar hliðar samrunans með það að markmið að hagsmunum almennings og borgar verði gætt, löglega verði að verki staðið og öllum spurningum svarað sem þegar hafa komið upp og upp kunna að koma við skoðun málsins, meðal annars með tilliti til athugasemda og spurninga Umboðsmanns Alþingis. Þá á hópurinn að leggja fram heildarstefnu Reykjavíkurborgar í orkumálum. Lagt er til að starfshópurinn hefji störf nú þegar og ráði sér starfsmann. Athygli vekur að starfshópurinn á að taka við af starfshópi fyrri meirihluta sem var að kanna hlutafélagavæðingu OR. Sá hópur laut forystu Björns Inga Hrafnssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Auk kjörinna fulltrúa eiga innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar, lögfræðilegur ráðgjafi, jarðhitafræðingur utan OR, sérfræðingur í fjárfestingum og fyrirhuguðum verkefnum REI, t.d. frá Jarðhitaskóla SÞ, að koma að vinnu hópsins. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili niðurstöðum í áföngum og lokaskil verði eigi síðar en á aðalfundi Orkuveitunnar 1. júní 2008.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira