Matvælaeftirlit undir eina stofnun 17. október 2007 16:05 MYND/Hari
Til stendur að koma á fót sérstakri stofnun, Matvælaeftirlitinu sem heyra mun undir sameinað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og tekur við verkefnum sem Landbúnaðarstofnun, Umhverfisstofnun og Fiskistofa hafa sinnt. Þetta kemur fram í stjórnarfrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi um breytta verkaskiptingu ráðuneyta. Fram kemur í frumvarpinu að markmið breyttrar verkaskiptingar sé að hagræða og einfalda stjórnsýslu. Allt matvælaeftirlit verður flutt undir Landbúnaðarstofnun og lagt til að stofnunin fái heitið Matvælaeftirlitið. Það á að annast opinber eftirlit með flutningi matvæla, innflutningi landbúnaðarafurða, búfjársjúkdómum, skoðun á sláturafurðum og eldisfiski og með meðferð, flutningi, geymslu, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, að undanskilinni smásölu. Með því að sameina matvælaeftirlit á einn stað er ætlunin að bæta eftirlitið og jafnframt efla samkeppnisstöðu og orðspor íslenskrar matvælaframleiðslu á mörkuðum, eins og segir í frumvarpinu. Meðal breytinga á verkaskiptingu sem þegar hafa verið samþykktar er að sameina landbúnaðarráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti, breyta Hagstofunni úr ráðuneyti í stofnun og breyta nöfnum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins samfara því að lífeyristryggingar og félagslegar bætur færast til félagsmálaráðuneytisins. Þá hafa iðnaðarráðuneyti og viðskiptaráðuneyti verið aðskilin. Enn fremur verða sveitarstjórnarmál flutt frá félagsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis, ferðamál frá samgönguráðuneyti til iðnaðarráðuneytis auk þess sem landbúnaðarskólar færast frá landbúnaðarráðuneyti til menntamálaráðuneytis. Landgræðsla og skógrækt annars vegar og vatnamælingar hins vegar flytjast enn fremur frá landbúnaðarráðuneyti og iðnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis enda er þar um málaflokka að ræða sem eru mjög nátengdir öðrum verkefnum umhverfisráðuneytisinsm, eins og segir í frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Ræktun nytjaskóga verður hins vegar undanskilin þessum flutningi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira