Innlent

Útvarpsstjóri með þreföld laun þingmanna

Páll Magnússon er svo sannarlega á uppleið. Með flottan bíl og flott laun frá skattgreiðendum.
Páll Magnússon er svo sannarlega á uppleið. Með flottan bíl og flott laun frá skattgreiðendum. Samsett mynd.
Páll Magnússon útvarpsstjóri er með nærri þreföld laun þingmanna. Hann er með 1500 þúsund á mánuði, eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu í morgun. Laun þingmanna eru 531 þúsund krónur á mánuði samkvæmt úrskurði kjararáðs frá því í ágúst síðastliðinn. Áður en Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert hlutafélag hafði Páll um 800 þúsund krónur í laun á mánuði. Útvarpsstjóri nánast tvöfaldaði því laun sín við breytinguna.

Þegar laun útvarpsstjóra eru borin saman við aðra embættismenn má sjá að hann fær um það bil 500 þúsund krónum meira en forsætisráðherra. Þá er lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með tæpar 900 þúsund á mánuði. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, hafa rétt undir 1800 þúsund krónur á mánuði. Aðrir bankastjórar Seðlabankans eru með um 1500 þúsund.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×